Platon leitar að ráðgjafa

Platon óskar eftir að ráða til sín sérfræðinga á sviði viðskiptagreindar. Platon er stærsta óháða ráðgjafafyrirtækið á sviði upplýsingastýringar á Norðurlöndunum með yfir 230 starfsmenn á 9 skrifstofum. Helstu viðskiptavinir Platon eru af ýmsum toga svo sem stærstu fyrirtæki á Norðurlöndum og stór fyrirtæki á heimsvísu.

Platon leggur mikið upp úr að ráðgjafar sínir séu þeir allra bestu í faginu og t.a.m. hefur fyrirtækið fengið ýmis verðlaun og viðurkenningar á sínu sviði því til sönnunar. Hjá Platon ríkir skemmtilegur andi og mikil samvinna. Þekkingarmiðlun er einn af lykilþáttum í starfi Platon og er miklu til kostað í þeim efnum.
Að þessu sinni leitar Platon á Íslandi að ráðgjöfum með þekkingu á Microsoft BI. Mikill kostur ef viðkomandi getur tekið þátt í verkefnum erlendis. Það sem við erum helst að leita eftir er:
  • Aðili sem getur bæði unnið sjálfstætt og í hópi
  • Að viðkomandi hafi tamið sér öguð og fagleg vinnubrögð
  • Almenn þekking á viðskiptagreind
  • Mjög góð þekking á viðskiptagreindartólum frá Microsoft
  • Þekking á SQL Server
Starfið innifelur m.a.
  • Ráðgjöf varðandi stefnumótun á sviði viðskiptagreindar
  • Ráðgjöf á sviði högunar
  • Þarfagreining, hönnun og innleiðing verkefna með MS BI tólum
  • Þátttaka í þekkingarmiðlun
  • Verkefnisstjórnun

Senda umsókn þína

Áhugasamir hafi samband við Sigurð Jónsson í síma 895-8605 eða í póstfang sigurdur.jonsson@platon.is